Close

Not a member yet? Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Forgot your password?

Icelandic Flag English Flag German Flag

Hvalaskoðun

Klukkan 9:30 til 12:30 frá Hauganesi

Daglega í Júní, Júlí og Ágúst

( Ath. á öðrum tímum er hægt að leigja bátinn í ferðir fyrir smærri sem stærri hópa. )

Hvalir sjást í um 95% ferða. Þær tegundir sem aðalega sjást eru hrefnur, hnísur, hnúfubakar og höfrungar.

Mark Carwardine, hvalasérfræðingur frá Englandi segir Ísland eitt besta hvalaskoðunarland í Evrópu og að Eyjafjörður sé ákjósanlegur til hvalaskoðunarferða.

Siglt er á Níelsi Jónssyni EA-106, sem er nánast óbreyttur fiskibátur, 30 tonn að stærð, smíðaður á Akureyri úr eik árið 1973. Bátnum hefur verið mjög vel við haldið. Hann er rúmgóður og þægilegur og er stjórnað af atvinnu fiskimönnum sem hafa siglt með ferðamenn síðan 1989 á sumrin.

Í hefðbundinni ferð er farið og komið frá litlu fiskimannaþorpi, Hauganesi (um 30 km frá Akureyri). Um borð er boðið upp á rjúkandi sjóarakaffi og heimagert bakkelsi, einnig eru sjóveiðistangir um borð þannig að þeir sem hafa áhuga geta rennt fyrir fisk.

Verð: 7.000 ISK
Innifalið: Ferð með leiðsögn, kaffi og bakkelsi, öryggisbúnaður og veiðarfæri.

Bókaðu núna í gegnum formið hér fyrir neðan !
Vinsamlegast takið fram fjölda og hvenær þið hafið áhuga á að sigla.
Mælt er með að bóka fyrirfram.

Contact Form

Smelltu til að sjá stærri mynd